22.11.2007 | 08:44
Við fögnum
Stjórn Ungmennahreyfingar Rauða kross Íslands fagnar því að lögreglurannsókn sé hafin á vefnum sem frá er greint í fréttinni. Á vefnum er rekinn áróður fyrir kynþáttastefnu, fordómar gegn kynþætti og trúarbrögðum opinberaðir á afar ósmekklegan hátt auk þess sem hakakrossinn er nýttur til að smána íslenska þjóðfánann og skjaldamerki Íslands.
Þess má geta að á fundi stjórnar URKÍ laugarfdaginn 10. nóv var staða innflytjenda í íslensku samfélagi rædd. Í kjölfarið sendi stjórn URKÍ frá sér ályktun þess efnis að staða innflytjenda á Íslandi sé heldur slæm og munum við í URKÍ á næstu misserum gera það sem í okkar valdi stendur til að stuðla að bættri stöðu þeirra, hvort heldur með beinum aðgerðum eða öðrum hætti.
![]() |
Rannsókn hafin á kynþáttanetsíðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Tek undir þetta með ykkur. Svona viðurstyggð á ekki heima í velsæmissamfélögum.
Jón Brynjar Birgisson, 22.11.2007 kl. 09:08
Fagna þessari síðu ykkar.
Þessi vefsíða sem talað er um í fréttinni er óhugguleg að öllu leyti.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, 23.11.2007 kl. 15:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.