Þorir þú ,,Á flótta"?

Langar þig til að komast að því hvernig 20 milljónir flóttafólks í heiminum upplifir lífið?

Fólk sem neyðist til að flýja landið sitt með óvissuna í farteskinu því það hafði ekki tíma til að pakka niður eigum sínum.

Langar þig að kynnast hvernig er að vera óvelkominn í eigin landi vegna skoðanna þinna?

,,Á flótta” er hlutverkaleikur þar sem að fólk á aldrinum 13 ára og eldra gefst kostur á því að upplifa hvernig það er að vera flóttamaður í sólarhring.

Þátttakendur fá nýja fjölskyldu, nýtt þjóðerni, ný trúarbrögð og upplifa dæmigerðar aðstæður flóttamanns frá stríði, spillingu og hungri á meðan þeir hrekjast frá einum stað til annars í leit að öruggum stað til að hefja nýtt líf.

Allt miðar að því að upplifun þátttakenda verði eins raunveruleg og hægt er.

Tilgangur með leiknum er að þátttakendur öðlist aukinn skilning á hlutskipti flóttamanna. Leikurinn er erfiður og ekki allir ná að ljúka honum, en hann er jafnframt mjög skemmtilegur og öruggt að þáttakendur upplifa nokkuð sem þeir munu seint gleyma

Í öllum þáttum leiksins eru þátttakendur í fylgd með einum eða fleiri leiðbeinendum sem eru í dulargervi sem landamæraverðir, lögreglumenn, hjúkrunarfræðingar o.fl.

Allir leiðbeinendur hafa farið á sérstök námskeið um leikinn.

Hvað eiga þáttakendur að hafa með sér?

Hlý föt til skiptanna
Svefnpoka
Útiföt (úlpu o.þ.h)
Þátttakendur eiga ekki að taka með sér verðmæti, farsíma né eitthvað matarkyns. Mikilvægt er að borða staðgóðan morgunmat áður en leikur hefst.

Hvenær er næsti leikur? 14 febrúar 2009

Hvað kostar? 1000 kr staðfestingargjald

Hvar er hann haldin? Á Suðurnesjum

Hvar er skráning og hvenær er lokaskráningadagur? Hægt að skrá sig hjá forstöðukonu Ungmennadeildar RRKÍ á netfangið Berglind@redcross.is eða í síma 545-0407.

Skráning staðfestist með greiðslu staðfestingargjald. Lokadagur skráningar er miðvikudagurinn 11 febrúar 2009.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband