Landsfundur Urkí

Landsfundur Ungmennahreyfingar Rauða kross Íslands verður haldinn laugardaginn 25. apríl 2009 frá kl. 13:00-15:00 í húsnæði Rauða kross Íslands, Efstaleiti 9, 103 Reykjavík.

Dagskrá landsfundar samkvæmt 6.gr. starfsreglna er eftirfarandi:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar um síðasta starfsár lögð fram til umræðu
3. Framkvæmda- og fjárhagsáætlun næsta árs lagðar fram til kynningar og umræðu skv. 8. gr.
4. Tillögur að breytingum á starfsreglum, skv. 9. gr.
5. Kosning formanns til tveggja ára, skv. 7. gr.
6. Kosning annarra stjórnarmanna til eins árs, skv. 7. gr.
7. Kosning varamanna stjórnar skv. 7. gr.
8. Önnur mál

Allir félagar URKÍ eiga rétt til setu á landsfundinum með tillögu- og atkvæðisrétti að fengnu samþykki viðkomandi deildar.

Samtals eru 9 sæti í kjöri: Formaður, kosinn til tveggja ára, 6 stjórnarmenn kosnir til eins árs og 2 varamenn kosnir til eins árs. Framboð, með lýsingu á frambjóðanda og störfum innan Rauða kross Íslands ásamt mynd, berist kjörnefnd fyrir landsfund URKÍ á tölvupóstfanginu kjornefnd@gmail.com Einnig er heimilt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum. Þeir sem hafa áhuga skulu ekki hika við að bjóða sig fram.

Öllum félögum Rauða kross Íslands sem eru 30 ára eða yngri er heimilt að bera upp tillögur um breytingar á starfsreglum URKÍ. Breytingatillögur skulu berast stjórn URKÍ tveimur vikum fyrir landsfund. Allar breytingatillögur skal bera upp á löglegum landsfundi. Breytingatillögur öðlast gildi ef meirihluti fundarmanna greiðir þeim atkvæði sitt og stjórn Rauða kross Íslands samþykkir þær. Hægt er að nálgast starfsreglur URKÍ á slóðinni
http://redcross.is/Apps/WebObjects/RedCross.woa/wa/dp?id=1000417

Stjórn URKÍ bindir miklar vonir við að fundinn sæki sem flestir ungir sjálfboðaliðar af öllu landinu svo ákvarðanir og umræður landsfundar endurspegli viðhorf sem flestra meðlima hreyfingarinnar.

Við viljum einnig vekja athygli á því að árshátíð URKÍ og URKÍ-R verður haldin að kvöldi 25. apríl og er þannig einskonar uppskeruhátíð í árslok.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband